lau. 30. maí 2020 07:18
Lögreglumenn að störfum. Myndin er úr safni.
Mikið annríki hjá lögreglunni í nótt

Mikið annríki var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt en rúmlega hundrað mál voru skráð frá klukkan 17 í gær til kl. 5 í nótt. Málin voru af ýmsu tagi og oftar en ekki þar sem fólk var undir áhrifum áfengis, fíkniefna eða hvors tveggja.

Nokkur heimilisofbeldismál komu inn á borð lögreglu, einnig líkamsárásir, hávaðakvartanir, aðstoð við borgarana vegna ástands, slys og óhöpp og svo voru níu ökumenn teknir fyrir ölvunar-, fíkniefnaakstur eða hvort tveggja, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. 

Tíu manns voru vistaðir í fangaklefum á tímabilinu frá 17:00 til 05:00.

til baka