miđ. 8. júlí 2020 10:49
María Mjöll Jónsdóttir, deildarstjóri upplýsingadeildar utanríkisráđuneytisins.
Stjórnvöld áhyggjufull vegna landvistarleyfa

Íslensk stjórnvöld hafa lýst yfir áhyggjum sínum vegna ákvörđunar bandarískra stjórnvalda um ađ fella úr gildi landvistarleyfi erlendra stúdenta, bćđi í samtali viđ sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi og í samskiptum sendiráđs Íslands í Washington viđ bandarísk stjórnvöld. Ţetta stađfestir María Mjöll Jónsdóttir, deildarstjóri hjá utanríkisráđuneytinu í samtali viđ mbl.is

Á mánudaginn greindi mbl.is frá ákvörđun bandaríska stjórnvalda um ađ fella úr gildi landvistarleyfi erlendra stúdenta sem stunda ţar nám ef allir áfangar sem ţeir eru skráđir í verđa kenndir í fjarnámi vegna kórónuveirufaraldursins.

mbl.is

mbl.is

Ákvörđun ţessi kemur međ til ađ hafa áhrif á nokkurn fjölda námsmanna sem leggja stund á nám í Bandaríkjunum. Flestir framhalds- og háskólar í Bandaríkjunum eiga enn eftir ađ gefa ţađ út hvernig námi verđur háttađ ţegar haustönn hefst.

Bandaríkjamenn fá ţegar undanţágur

María Mjöll segir ađ íslensk stjórnvöld hafi veriđ í samráđi viđ bandarísk stjórnvöld um gagnkvćmar tilslakanir á ferđatakmörkunum Bandaríkjanna og Schengen-ríkjanna fyrir ákveđna hópa. Hún segir ađ bandarískir námsmenn og fleiri hópar sem sćkja til íslands í brýnum erindagjörđum fái ţegar undanţágur frá ferđatakmörkunum.

Mbl.is greindi frá ţví í gćr, ţriđjudag, ađ mikil óvissa ríki í alţjóđastarfi háskóla um heim allan vegna kórónuveirunnar. Fjöldi samstarfsskóla Háskóla Íslands hafa, til ađ mynda, ákveđiđ ađ taka ekki á móti neinum skiptinemum á haustönn, og ferđatakmarkanir hafa olliđ ţví ađ mikil röskun hefur veriđ á áćtlunum nemenda sem hygđust stunda nám erlendis á haustönn.

til baka