lau. 11. júlí 2020 12:00
Ný útgáfa þekktra eurovisionstjarna á smellinum Volcano man úr eurovisionmynd Will Ferrels hefur slegið í gegn á Youtube. Alexander Rybak sem sigraði keppnina fyrir hönd Noregs 2009 er meðal flytjenda í laginu en Daði Freyr nýjasta eurovisionstjarna Íslendinga lokar laginu með eftirminnilegum hætti.
Daði og eurovisionstjörnur flytja „Volcano man“

Nýjasta eurovisionstjarna Íslendinga hefur gefið út nýja ábreiðu af smellinum „Volcano Man“ úr eurovisionmyndinni Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga, sem hefur sannarlega slegið í gegn hér á landi og víðar, á Youtube síðu sinni.

Er ábreiðan lengri útgáfa af broti úr samsettu myndbandi á vegum Netflix sem birt var á dögunum þar sem fjöldi þekktra eurovisionstjarna taka lagið eftirminnilega. Daði Freyr sjálfur lokar laginu með eftirminnilegum hætti í lok myndbandsins og gerir lagið að sínu eigin með sínum einstaka tónlistarstíl klæddur í grænni peysu að vana. 

Myndböndin má sjá í spilurunum hér að neðan. 

 

 

 

til baka