lau. 11. júlí 2020 08:22
Roger Stone og Donald Trump hafa lengi veriđ félagar og vinir en Stone var hans helsti ráđgjafi í forsetakosningunum 2016.
„Roger Stone er nú frjáls mađur!“

Forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, mildađi refsingu yfir fyrrverandi ráđgjafa sínum og vini, Roger Stone, í gćr. „Roger Stone er nú frjáls mađur!“ segir í tilkynningu frá forsetaembćttinu. Stone átti ađ hefja afplánun 40 mánađa fangelsisdóms innan nokkurra daga. 

Frétt mbl.is

Stone var í nóv­em­ber í fyrra fund­inn sek­ur um ađ hindra fram­gang rétt­vís­inn­ar og um falsk­ar yf­ir­lýs­ing­ar varđandi vitn­is­b­urđ hans fyr­ir Banda­ríkjaţingi vegna tölvu­pósta Demó­krata­flokks­ins sem stoliđ var áriđ 2016.

Ákvörđun Trumps varđ til ţess ađ enn einu sinni fór af stađ umrćđa um hversu frjálslega forsetinn fer međ heimildir sínar ţegar kemur ađ réttarkerfi landsins ţegar kemur ađ ađstođ viđ vini og bandamenn og refsingum óvina og gagnrýnenda.
Trump hefur harđlega gagnrýnt rannsókn sérstaks saksóknara, Robert Mueller, á birtingu uppljóstrunarvefjarins WikiLeaks á tölvupóstunum. Leyniţjónusta Bandaríkjanna hefur sagt ađ WikiLeaks hafi fengiđ tölvupóstana frá rússneskum hökkurum sem hafi stoliđ ţeim. Segir Trump ađ enginn glćpur hafi veriđ framinn og ađ Stone hefđi aldrei átt ađ vera ákćrđur enda ásakanirnar tilefnislausar. 

Í yfirlýsingu sem lögmađur Stone, Grant Smith, sendi á fjölmiđla í gćrkvöldi kemur fram ađ skjólstćđingur hans er gríđarlega upp međ sér ađ forseti landsins hafi nýtt sér einstakar og um leiđ frábćrar valdheimildir, sem byggi á stjórnarskrá landsins, til ţess ađ milda refsinguna.

Ţetta er ekki í fyrsta skipti sem ríkisstjórn Bandaríkjanna kemur Stone til ađstođar ţví eftir ađ saksóknari fór fram á ađ Stone yrđi dćmdur í 7-9 ára fangelsi greip Bill Barr dómsmálaráđherra, sem hefur veriđ sakađur um ađ hegđa sér eins og persónulegur lögfrćđingur Trump, og sagđi ţađ allt of langur dómur, ađ ţví er segir í frétt AFP-fréttastofunnar. 

Stone er sjötti ađstođarmađur Trump sem er dćmdur fyrir misnotkun valds í tengslum viđ rannsókn Robert Mueller, sérstaks saksóknara á afskiptum Rússa ađ bandarísku forsetakosningunum 2016. 

til baka