lau. 11. júlí 2020 13:07
25 ár frá þjóðarmorðunum í Srebrenica

Aldarfjórðungur er liðinn síðan hersveitir Serba drápu yfir átta þúsund múslíma, karla og drengi, í bænum Srebr­enica í Bosn­íu og Her­segóvínu. Fjölda­morðin eru þau verstu í Evrópu síðan í hel­för­inni. Líkt og undanfarin ár minntust margir hryllingsstundarinnar fyrir 25 árum en kórónuveirufaraldurinn kemur í veg fyrir að jafn margir geti tekið þátt líkt og oft áður þann 11. júlí.

Í morgun voru líkamsleifar níu fórnarlamba lögð til hinstu hvíldar í kirkjugarðinum í Potocari en það var ekki fyrr en á þessu ári sem það tókst að bera kennsl á þær. Þorpið Potocari var bækistöð friðargæsluliðs Sameinuðu þjóðanna en Sam­einuðu þjóðirn­ar höfðu sagt Srebr­enica ör­uggt svæði fyr­ir al­menna borg­ara í stríðinu.

Það stöðvaði ekki Serba frá því að ráðast inn í bæ­inn sem þeir höfðu setið um í mörg ár. Her­inn réðst inn í bæ­inn 11. júlí 1995 og flykkt­ust flest­ir múslim­ar bæj­ar­ins til bækistöðva Sam­einuðu þjóðanna skammt frá í von um að hol­lensk­ir friðargæsluliðar myndu vernda þá.

 

Friðargæsluliðarn­ir voru hins veg­ar und­ir­mannaðir og yf­ir­bugaðir af hern­um og gátu lítið sem ekk­ert gert þegar her­menn­irn­ir tóku karla og drengi af lífi en fluttu kon­urn­ar og stúlk­urn­ar í burtu. Næst­um því 15.000 íbú­ar Srebr­enica reyndu að flýja her­menn­ina í gegn­um skóg­lendið en rúm­lega 8.000 voru drepn­ir.

Alþjóðadóm­stól­ar hafa flokkað at­b­urðina sem þjóðarmorð þar sem fleiri en 8.000 létu lífið og er það hið op­in­bera mat að mark­mið morðanna hafi verið að út­rýma múslim­um á svæðinu.

Sehad Hasanovic, er 27 ára gamall og á tveggja ára gamla dóttur. Hún er jafn gömul og hann var þegar faðir hans var tekinn af lífi. „Það er erfitt að verða vitni að því þegar einhver kallar pabbi og þú átt engan,“ segir  Hasanovic. Faðir hans, Semso, flúði inn í skóginn við bæinn en hann sneri ekki aftur. Aðeins hluti líkamsleifa hans hafa fundist. 

Frétt mbl.is

Semso var drepinn af hermönnum Bosníu-Serba undir stjórn Ratko Mladic. Bróðir hans, Sefik og faðir þeirra, Sevko, voru einnig drepnir.

„Eiginmenn fjögurra systra minna voru drepnir,“ segir Ifeta Hasanovic, 48 ára, en líkamsleifar eiginmanns hennar, Hasib, voru meðal þeirra sem jarðsettar voru í dag. 

„Bróðir minn var drepinn og einnig sonur hans. Tengdamóðir mín missti einnig annan son sem og eiginmann sinn.“

 

Stríðið milli Bosníu Króata, múslíma og Serba stóð yfir í þrjú ár, 1992-1995, og er talið að það hafi kostað 100 þúsund mannslíf. Enn hafa aðeins fundist líkamsleifar tæplega 6.900 fórnarlamba fjöldamorðanna í Srebrenica og fundust þau í yfir 80 fjöldagröfum. 

Enn líta margir Serbar á Ratko Mladic sem þjóðhetju en hann var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir alþjóða glæpadómstólnum í Haag árið 2017. Hann áfrýjaði dómnum en niðurstaða áfrýjunardómstóls liggur ekki fyrir. Hann var dæmdur sekur um stríðsglæpi, þar á meðal þjóðarmorðin í Srebrenica.

 

Radov­an Kara­džić, fyrr­ver­andi leiðtogi Bosn­íu-Serba, hlaut lífstíðardóm þjóðarmorð og stríðsglæpi árið 2017. Hann hlaut 40 ára dóm árið 2016, en kaus að áfrýja þeim dómi.

Frétt mbl.is

til baka