Dregið var í átta liða úrslit Mjólkurbikars kvenna í fótbolta í dag. Stórleikur átta liða úrslitanna fer fram á Selfossi þar sem bikarmeistarar Selfoss og Íslandsmeistarar Vals eigast við.
KR, sem mætti Selfossi í úrslitum á síðasta ári, mætir FH á útivelli. Tvö Lengjudeildarlið eru eftir í keppninni og fá þau verðug verkefni; ÍA fær stórlið Breiðablik í heimsókn og Haukar heimsækja Þór/KA á Akureyri.
Átta liða úrslitin:
Þór/KA - Haukar
FH - KR
ÍA - Breiðablik
Selfoss - Valur