mið. 25. nóv. 2020 09:48
Heitavatnslaust um tíma

Rafmagnslaust og heitavatnslaust var um tíma í morgun vegna háspennubilunar í Norðlingaholti.

Víðar á austur- og suðurhluta höfuðborgarsvæðisins fór heita vatnið af vegna bilunar í spennistöð en viðgerð er lokið þannig að bæði rafmagn og heitt vatn á að vera komið á að nýju samkvæmt upplýsingum frá Veitum. Einhvern tíma tekur að ná upp þrýstingi að nýju á heita vatninu.

til baka