fös. 22. jan. 2021 10:30
Söngkonan Adele.
Hjónabandi Adele formlega að ljúka

Tónlistarkonan Adele og barnsfaðir hennar, Simon Knocki, hafa loksins komist að samkomulagi um skilnað sinn. Hjónin tilkynntu um skilnað fyrir tæpum tveimur og nú eru hjónin á síðustu metrunum. Búið er að afhenda gögnin en dómari hefur ekki enn skrifað undir formlega skilnaðarpappíra.

Hjónin afhentu pappíra með skilnaðarsamkomulagi sínu fyrir nokkrum dögum að því fram kemur á vef People. Það þýðir að þau ættu að vera búin að komast að samkomulagi um alla anga skilnaðarins. Þegar Adele sótti um skilnað kom fram að þau ætluðu að fara í sáttamiðlun til þess að finna út úr skiptingu eigna og greiðslum á framfærslufé. 

Hjónin byrjuðu saman árið 2011 og eignuðust son ári síðar. Þau gengu í hjónaband árið 2016 en tilkynntu óvænt í apríl 2019 að þau væru skilin að borði og sæng. 

 

til baka