fös. 22. jan. 2021 15:52
Ákæran gegn Donald Trump verður send í öldungadeildina á mánudaginn.
Ákæran á hendur Trump send öldungadeildinni á mánudaginn

Chuck Schumer, forseti öldungadeildar Bandaríkjaþings, hefur staðfest að réttað verði yfir Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, í öldungadeildinni, en ákæra fulltrúadeildarinnar verður send til öldungadeildarinnar á mánudaginn.

Trump var ákærður yr­ir brot í starfi með því að hvetja til upp­reisn­ar eft­ir að stuðnings­menn hans æddu inn í þing­húsið 6. janú­ar. 

Schumer sagði í ræðu í dag að hann hefði rætt við Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildarinnar, og hún hefði upplýst hann um að ákæran yrði send milli deildanna á mánudaginn.

Réttarhöld munu fara fram í öldungadeildinni og í kjölfarið verða greidd atkvæði um það hvort Trump verði sakfelldur eða ekki.

 

 

Fyrr í dag hafði verið greint frá því að repúblikanar í öldungadeildinni hefðu óskað eftir því við demókrata að fresta réttarhöldunum þangað til í febrúar. Þeir segja að með þessu fái Trump tíma til að und­ir­búa vörn­ina. 

Sé for­seti Banda­ríkj­anna ákærður fyr­ir brot í embætti er for­seti Hæsta­rétt­ar í for­sæti í öld­unga­deild­inni. Tvo þriðju hluta at­kvæða viðstaddra þarf til að sak­fella í slíku máli. Þris­var sinn­um hef­ur for­seti verið ákærður fyr­ir brot í starfi en sýknaður í öll skipt­in.

til baka