fös. 22. jan. 2021 21:56
Vitinha, til hægri, skoraði mark Úlfanna og á hér í höggi við Elliot Newby, leikmann Chorley.
Eitt mark gegn liði úr sjöttu deild

Úrvalsdeildarliðið Wolves vann nauman sigur á Chorley, 1:0, á útivelli í 32ja liða úrslitum ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu í kvöld.

Vitinha skoraði strax á 12. mínútu þannig að stórsigur Úlfanna virtist í uppsiglingu en meira gerðu þeir ekki.

Chorley leikur í sjöttu efstu deild og er þar í níunda sæti, 110 sætum neðar en Úlfarnir sem eru í fjórtánda sæti úrvalsdeildarinnar.

til baka