þri. 26. jan. 2021 15:32
Kampi á Ísafirði.
Vísað úr stjórn og sagt upp störfum

Öðrum af tveimur verklegum stjórnendum rækjuverksmiðjunnar Kampa á Ísafirði hefur verið sagt upp störfum og vísað úr stjórn félagsins. Er umræddur aðili sakaður um að hafa vísvitandi gefið upp ranga mynd af fjárhagsstöðu verksmiðjunnar. Jón Guðbjartsson, stjórnarformaður Kampa, staðfestir þetta í samtali við mbl.is. 

xx

Fyrr í dag var haldinn stjórnarfundur þar sem stjórnarmanninum, sem séð hafði um fjármál fyrirtækisins, var vísað úr stjórn. Honum hafði verið sagt upp störfum hjá Kampa fyrir jól. Jón Guðbjartsson sagði í samtali við Morgunblaðið fyrr í vikunni, að bókhald félagsins hefði verið byggt á skáldskap um nokkurra ára skeið. 

Samkvæmt heimildum blaðsins skeikaði fjárhagsstöðunni um hundruð milljóna króna. Aðspurður segir Jón að ákveðið hafi verið að vísa umræddum aðila úr stjórn félagsins í dag. „Það var eðlilegt enda getur hann ekki verið í stjórninni þegar við ætlum að ræða hvernig við snúum okkur í hinu eða þessu.“

Jón segist hafa fengið lögfræðilega leiðbeiningu þess efnis. Í næstu viku verður haldinn hluthafafundur þar sem ákvörðun verður tekin um hver kemur inn í stjórnina. 

xx

til baka