sun. 18. apr. 2021 16:00
Sara Snædís Ólafsdóttir er tveggja barna móðir sem býr í Svíþjóð og lætur drauma sína rætast.
Fer alltaf að sofa með tandurhreina húð

Sara Snædís Ólafsdóttir segir að góð hreyfing gefi lífinu gildi. Hún er með einstakan smekk og alltaf fallega til fara. Í viðtalinu deilir hún leyndarmáli sem mun fá konur til að vilja hreyfa sig reglulega. Hún er fædd og uppalin í Fossvoginum, tveggja barna móðir, unnusta og eigandi Withsara og hefur mikla ástríðu fyrir heilsu. Hún er búsett í Stokkhólmi og ver miklum tíma í að styðja við vöxt og reka síðuna Withsara.is.

„Þar býð ég upp á heimaæfingar í áskrift til að hjálpa konum um allan heim að byggja upp styrk og jafnvægi í heilsu og mataræði. Dagarnir mínir eru mjög fjölbreyttir en ég tek upp mikið af æfingum fyrir síðuna, funda með fólki sem hjálpar mér að gera upplifun Withsara enn betri og sé um heimilið og stelpurnar mínar.“

Hvað er grunnurinn að góðu lífi að þínu mati?

„Það er jafnvægi. Að finna jafnvægi er minn útgangspunktur þegar kemur að heilbrigði og góðu lífi. Jafnvægi í mataræði, hreyfingu, vinnu, sálarlífi og félagslífi. Þegar jafnvægi er náð ertu komin á þægilegan stað og getur notið þess sem þú gerir enn betur.“

Hvað getur þú sagt mér um það sem þú starfar við og hvenær fannstu jóga fyrst?

„Ég stofnaði Withsara í mars árið 2020. Fram að því var ég að kenna við stærsta „boutique“-stúdíóið í Stokkhólmi. Þar var ég yfirþjálfari og byggði meðal annars upp nýtt barre-æfingakerfi þar og sá um að þjálfa nýja og núverandi kennara. Ég starfa einnig sem jógakennari bæði í stúdíói og sem einkakennari. Ég byrjaði að æfa jóga fyrir alvöru rétt eftir tvítugt og hefur það síðan þá alltaf verið stór partur af mér og minni hreyfingu.“

 

Segir lífið gott í Stokkhólmi

Sara Snædís hefur búið í Stokkhólmi frá því haustið 2017.

„Við búum í hjarta Stokkhólms, í Vasastan. Það er æðislegt hverfi og búum við upp við einn fallegasta almenningsgarð í Stokkhólmi. Hér er mikið líf og fjör og við getum gengið eða hjólað allt sem við þurfum að fara þannig að við höfum ekki átt bíl frá því að við fluttum frá Íslandi.“

Hvað er barre-þjálfun og hvernig er að kenna slíkt?

„Barre er byggt á pílates-, ballett- og hreystiæfingum. Unnið er að því að styrkja djúpvöðva líkamans með fjölbreyttum og krefjandi æfingum. Í mínum tímum gerum við flestar æfingar í takt við tónlist en það heldur manni við efnið, hvetur áfram og skapar skemmtilega stemningu. Tímarnir eru allir „low-impact“ þannig að það er ekkert hopp og skopp heldur alltaf einn fótur á jörðu. Æfingarnar styrkja, tóna og lengja vöðva líkamans og gefa aukna vellíðan og betri líkamsstöðu. Ég elska að kenna barre og í tímunum mínum hjá Withsara nota ég mjög mikið af barre-æfingum sem gera tímana krefjandi og skemmtilega.“

Varstu í ballett hér áður?

„Já, ég æfði ballett frá unga aldri og alveg fram yfir tvítugt. Ég lærði dans í London eftir menntaskóla og nota ég reynslu mína úr dansinum mikið við kennslu enn þann dag í dag.“

 

Átti mjög góðar meðgöngur

Hvernig leið þér á meðgöngunni og hvernig var að byggja upp líkamann eftir barneignir?

„Ég átti mjög góðar meðgöngur og leið vel á þeim báðum. Eftir seinni meðgönguna fann ég sérstaklega hvað líkami minn var á miklum upphafspunkti og þurfti að verja miklum tíma og orku í að byggja hann upp aftur. Ég gerði mjög einfaldar og hægar barre-æfingar í margar vikur og byggði hægt og rólega ofan á þær. Það skiptir svo miklu máli að fara varlega af stað í hreyfingu eftir barnsburð og taka það rólega til þess að byrja og leyfa líkamanum að jafna sig almennilega. Inni á Withsara er ég fljótlega að fara að bjóða upp á byrjendanámskeið sem henta vel fyrir konur sem hafa nýlega eignast barn eða eru óléttar. Margar teygjuæfingar og jógatímarnir inni á Withsara eru fullkomnir fyrir konur eftir barnsburð.“

Sara Snædís segir fjölskyldunni líða mjög vel í Stokkhólmi.

„Það er yndislegt að vera með börn hérna enda Stokkhólmur mjög fjölskylduvæn borg. Við elskum bíllausa lífsstílinn og aðallega vegna þess að það er alltaf svo stillt veður hér svo það er auðvelt að valsa um borgina án þess að þurfa að berjast á móti vindi.

Í Stokkhólmi eru margir fallegir almenningsgarðar sem við elskum að fara í, sérstaklega á sumrin. Það eru einnig nokkrar fallegar strendur í borginni sem eru hálffaldnar og ekki svo langt frá okkur, sem við elskum að heimsækja á sumrin. Það sem mér finnst mest heillandi við borgina hins vegar eru öll fallegu kaffihúsin sem gott er að tylla sér á, fá sér góðan hafralatte og vinna. Mitt allra mesta uppáhaldskaffihús er Pom och Flora sem er rétt hjá mér. Göturnar og húsin í miðbænum eru líka alveg einstaklega falleg og að hlusta á gott hlaðvarp og ganga um götur og virða fyrir sér fegurðina er alveg ótrúlega róandi og gott.“

 

Áttu þér uppáhaldstískumerki?

„Upp á síðkastið hef ég verið að versla í Arket og Samsøe en ég finn mér alltaf eitthvað fallegt þar. Þar sem ég æfi mjög mikið er ég mestalla vikuna í íþróttafötum og klæðist langmest Lululemon sökum þæginda og hversu falleg þau eru, bæði sniðin og litirnir.“

Segir dásamlegt að hreyfa sig úti

Ertu mikið úti á sumrin?

„Já, að búa í Stokkhólmi á sumrin er dásamlegt og maður tímir varla að vera inni í góða veðrinu þannig að ég reyni að finna mér staði til að sitja úti í skugga á daginn til að vinna. Ég tók upp Withsara-æfingu úti síðasta sumar sem lýsir sænska sumrinu einstaklega vel.“

Er þetta draumalífið?

„Já, ég á heilbrigð börn og heilbrigða fjölskyldu. Fyrir mig er verðmætt að geta stjórnað tíma mínum sjálf og að fá að gera það í svona fallegri borg sem hefur upp á mörg tækifæri að bjóða er æðislegt. Það getur verið krefjandi að byggja upp fjölskyldu og fyrirtæki í öðru landi en sínu heimalandi og svo söknum við vina og fjölskyldu mikið. Ég er mjög þakklát fyrir þann stað sem ég er á í lífinu.“

Hvaða matur er í uppáhaldi hjá þér?

„Ég elska morgunmat og góðan smoothie, chiagraut með alls konar ofan á og gott súrdeigsbrauð með avókadó. Maðurinn minn er heimsins besti kokkur og gerir sem dæmi besta geitaostasalat í heimi, grænmetislasagna og pítsur.“

Heilbrigði að kunna að sinna sér

Þegar kemur að snyrtivörum þá er hún með alls konar áhugaverðar vörur í snyrtitöskunni.

„Í snyrtibuddunni er ég með Telescopic-maskarann sem ég hef notað í mörg ár, Gimme brow-gel frá Benefit, Goof Proof brow pencil frá Benefit, Hoola-sólarpúður, Margin-kinnalit frá Mac, varasalva og þegar ég þarf á því að halda skelli ég á mig hyljara frá Benefit. Ég nota ekki oft meik en það sem ég nota er frá Make up forever. Það gefur svo fallega og náttúrulega áferð. Ég get aldrei farið að sofa án þess að hreinsa húðina vel og bera á mig góð krem. Ég nota mest vörur frá Ordinary og svo er lífrænt merki úti í Svíþjóð sem heitir Maria Akerberg og hef ég notað olíur og fleira þaðan.“

 

 

Sara Snædís segir að ef konur vilji koma rútínu á hreyfinguna – finni sig oft í tímaþröng en vilji taka eitt skref í rétta átt – ættu þær að skoða Withsara.

„Ég býð meðal annars upp á vikulega dagskrá, sem er vinsælast inni á Withsara, þar sem ég er búin að setja upp vikuna fyrir meðlimi sem inniheldur fjölbreyttar æfingar á hverjum degi sem taka allar 30 mínútur eða minna. Markmiðið er að styðja við heilbrigði kvenna og vera hvatning fyrir þær til þess að finna ánægjuna og vellíðan við að hreyfa sig. Þess vegna er Withsara einföld í notkun og býður vikulega upp á nýjar æfingar sem hægt er að gera hvenær sem er án fyrirhafnar.

Markmiðið með hreyfingu er að auka vellíðan og sjálfstraust, styrkja líkamann og láta hreyfinguna vera hluta af þínum lífsstíl. Hreyfing ætti ekki að vera kvöð heldur ætti hún að skapa tilhlökkun og ánægju og fylla á orkubú líkamans.“

til baka