mán. 12. apr. 2021 19:30
Ofsalega girnileg Rolo kaka.
Ómótstæðileg ostakaka með Rolo

Hér bjóðum við ykkur upp á örfá og einföld hráefni í stórkostlegri ostaköku – og það besta er að þú þarft ekki einu sinni að kveikja á ofninum til að baka kökuna. Uppskriftin kemur frá @Fitwafflekitchen, sem bakar krásir sem þessa daglega og er með yfir 460 þúsund fylgjendur á Instagram.

 

Ómótstæðileg ostakaka með Rolo

Botn

Ostakrem

Topping

Aðferð:

  1. Blandið muldu kexi og smjöri saman í skál og setjið í bökunarmót. Þjappið kexmulninginn og setjið í ísskáp.
  2. Þeytið rjómann.
  3. Blandið rjómaosti, flórsykri og karamellu vel saman. Setjið því næst rjómann varlega saman við blönduna. Leggið þá blönduna ofan á kexbotninn og setjið inn í ísskáp í það minnsta fimm klukkutíma, eða yfir nótt.
  4. Takið kökuna úr mótinu og hellið karamellu yfir og skreytið með Rolo-bitum. Setjið aftur inn í ísskáp þar til bera á fram.
til baka