þri. 13. apr. 2021 10:29
Hilmar Guðmundsson hífir gráslepputunnu úr Ásdísi, en um borð er Héðinn Jónasson. Búið er að hefja grásleppuveiðar og hefur veiðin gengið vel fyrir norðan.
16 tunnur af sulli eftir að hafa dregið einu sinni

Það kom að því að grásleppusjómenn á Húsavík hæfu vertíðina en þeir lögðu netin fyrir og um helgina. Fyrsti báturinn landaði á sunnudag en þeir sex bátar sem gerðir eru út frá Húsavík drógu netin í gær.

Þegar fréttaritari átti leið um bryggjuna á Húsavík síðdegis í gær var verið að landa úr Ósk ÞH 54, Sigrúnu Hrönn ÞH 36 og Ásdísi ÞH 136. Skemmst er frá því að segja að veiðin er mjög góð og voru þeir Hilmar Guðmundsson og Héðinn Jónasson á Ásdísi með 16 tunnur af sulli eftir að hafa dregið netin einu sinni.

 

til baka