þri. 13. apr. 2021 13:15
Leyndardómsfyllsta uppskrift heims endurgerð

Uppskriftin að kryddblöndu KFC er jafn leyndardómsfull og uppskriftin að Coca-Cola. Það hefur þó ekki stoppað fólk í að reyna sig við blönduna og eru fjölmargar ansi góðar eftirlíkingar í boði á veraldarvefnum.

Í Bretlandi hófu göngu sína á dögunum þættirnir Snackmasters þar sem þrír meistarakokkar reyna eftir bestu getu að endurgera heimsfrægar uppskriftir og riðu þeir á vaðið með KFC-formúlunni.

Þetta er uppskriftin sem bar sigur úr býtum í þessum fyrsta þætti og það verður forvitnilegt að prófa hana. 

KFC-blandan að hætti Snackmasters

Aðferð:

  1. Blandið kryddi og jurtum saman við hveitið.
  2. Penslið bitana með eggjum og mjólk.
  3. Hjúpið kjúklinginn vel með hveitikryddblöndunni.
  4. Djúpsteikið í fimm til sex mínútur og setjið svo í ofnskúffu til að fullelda. Snöggdjúpsteikið svo aftur áður en þið berið bitana fram.
til baka