þri. 13. apr. 2021 14:30
Útflutningur eldisafurða hefur vaxið mjög og var mars stærsti mánuðurinn frá upphafi, en þá voru fluttar út afurðir fyrir 5,5 milljarða.
Eldisafurðir 9% af útflutningi í mars

Mars reyndist stærsti mánuðurinn í útflutningi á eldisafurðum frá upphafi og nam útflutningsverðmæti þeirra um 5,5 milljörðum króna í mánuðinum. Um er að ræða tvöföldun á útflutningsverðmætum á föstu gengi og ef miðað er við næststærsta mánuðinn voru verðmætin nú í mars 40% meiri, að því er fram kemur í færslu á Radarnum.

Þá var útflutningsverðmæti eldisafurða 9% af verðmæti alls vöruútflutnings frá Íslandi sem er hæsta hlutfall frá upphafi. „Útflutningsverðmæti sjávarafurða var 26,9 milljarðar króna í mars og því er ljóst að fiskur var mjög fyrirferðarmikill í útflutningi í mánuðinum, eða um 53% af verðmæti vöruútflutnings í heild,“ segir í færslunni.

Bent er á að á fyrsta ársfjórðungi er samanlagt verðmæti útfluttra eldisafurða um 11,5 milljarðar króna, sem er um 31% aukning miðað við sama tímabil í fyrra á föstu gengi. Ársfjórðungurinn er sá stærsti í eldisafurðum frá upphafi og nema afurðirnar 7% af heildarverðmæti vöruútflutnings landsins á tímabilinu.

„Líkt og fram kemur í nýrri ríkisfjármálaáætlun er mikill vöxtur í fiskeldi til marks um hvernig bein erlend fjárfesting getur gegnt lykilhlutverki í að hraða vexti í atvinnugrein þar sem þekking berst á milli landa. Sú þróun er afar jákvæð fyrir þjóðarbúið og er fiskeldi ein fárra útflutningsgreina sem hefur verið í vexti undanfarin misseri. Þar kemst raunar engin atvinnugrein með tærnar þar sem fiskeldi hefur hælana.“

til baka