þri. 13. apr. 2021 14:16
Björgunarskipið Oddur V. Gíslason hélt til móts við fiskibát sem starndaði í Krossavík.
Betur fór en á horfðist er bátur strandaði

Betur fór en á horfðist er bátur á netaveiðum með tveggja manna áhöfn strandaði í Krossavík austur af Reykjanestá í hádeginu í dag.

Fram kemur í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni að tilkynning barst stjórnstöð stofnunarinnar um strand bátsins klukkan 12:46 og að þyrla hafi þegar verið kölluð út ásamt sjóbjörgunarsveitum. Héldu björgunarskipið Oddur V. Gíslason og björgunarbáturinn Árni í Tungu til móts við fiskibátinn frá Grindavík og TF-GRO, þyrla Landhelgisgæslunnar, tók á loft frá Reykjavíkurflugvelli.

Hins vegar vildi svo til að að skömmu eftir strandið losnaði fiskibáturinn af strandstað og gat siglt fyrir eigin vélarafli. Þá var skrúfa bátsins löskuð en enginn leki hafði komið að honum auk þess sem veður var með ágætum.

Þegar Oddur V. Gíslason var kominn að bátnum var þyrla Landhelgisgæslunnar afturkölluð og fylgdi björgunarskipið bátnum til hafnar í Grindavík.

til baka