þri. 13. apr. 2021 16:28
Breiðafjarðarferjan Baldur verður tekin í slipp í maí.
Baldur í slipp í maí

Ferjan Baldur mun fara í slipptöku í byrjun maí, að því er fram kemur í tilkynningu frá Sæferðum. Þar segir að um sé að ræða hefðbundna og reglubundna slipptöku sem framkvæmd er á þurru landi annað hvert ár.

Slipptakan fer fram í Reykjavík frá 3. maí og gera áætlanir ráð fyrir um tveimur vikum og að ferjan verði komin aftur í áætlun mánudaginn 17. maí.

Í fjarveru Baldurs mun farþegaskip Sæferða, Særún, sigla til Flateyjar.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2021/03/18/baldur_hefur_aaetlunarsiglingar_i_dag/

til baka