miđ. 21. apr. 2021 21:33
Pútín Rússlandsforseti er greinilega víđlesinn mađur. Í árlegu sjónvarpsávarpi sínu vísađi hann til skáldsögu Nóbelsverđlaunahafans Rudyard Kipling, Skógarlífs, og sagđi bandamenn Bandaríkjanna sitja um Rússland eins og sjakalinn Tabaqui sat um afganga tígrisdýrsins vonda Sera Kan.
Varađi Vesturlönd viđ međ vísan í Skógarlíf

Pútín Rússlandsforseti varađi Vesturlönd viđ ţví ađ „fara yfir mörkin“ í framkomu sinni gagnvart Rússum og vísađi ţar til gagnrýni Vesturlanda á međferđ rússneskra stjórnvalda á stjórnarandstćđingnum Alexei Navalní og vegna deilna um Úkraínu. BBC greinir frá.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2021/04/18/segir_frettir_af_heilsu_navalnis_uggvekjandi/

Ţetta gerđi hann í árlegu ávarpi sínu til ţjóđarinnar og bćtti viđ ađ Vesturlönd vćru sífellt ađ „ýta viđ“ Rússum. Hann líkti svo bandamönnum Bandaríkjanna viđ sjakalann Tabaqui, sem át gjarnan afgangana eftir tígrisdýriđ vonda Seri Kan, í sögu Rudyards Kiplings, Skógarlíf (e. The Jungle Book).

Pútín talađi ţó mest um kórónuveiruna og áćtlanir um efnahagslega framţróun og aukin fjárútlát til rússneska velferđarkerfisins.

Pútín og Lúkasjenkó hittast á morgun

Ţvingunarađgerđir Vesturlanda gegn Rússum segir Pútin ađ séu tilraun ţeirra til ţess ađ ógna stöđugleika í Rússlandi og međal bandaţjóđa Rússa síđan á tímum Sovétríkjanna, Hvíta-Rússlands og Úkraínu.

Pútín styđur enda Alexander Lúkasjenkó, forseta Hvíta-Rússlands, sem hlaut endurkjör á seinasta ári í kosningum sem fćstir ţjóđarleiđtogar á Vesturlöndum viđurkenna. Ofbeldi lögreglu gegn friđsamlegum mótmćlum ţar í landi og í Rússlandi hafa vakiđ óhug.

Pútín og Lúkasjenkó eru sagđir munu hittast í Moskvu, höfuđborg Rússlands, á morgun.

 

 

til baka