sun. 24. okt. 2021 16:00
Sigrún býr í fallegu húsi sem þau fjölskyldan byggðu fyrir 35 árum. Á bak við hana á þessari mynd er veggteppi unnið með góbelínsaumi í ullarjava frá vefstofu Karólínu Guðmundsdóttur. Svipuð teppi voru oft hengd ofan við legubekki.
„Húsið mitt er ákaflega opið“

Sigrún Helgadóttir býr í fallegu húsi sem er fullt af fegurð og spennandi handverki. Sjálf er hún alin upp af fólki sem féll aldrei verk úr hendi og þar sem handverk spilaði stórt hlutverk. 

Sigrún er líf- og umhverfisfræðingur sem hefur lengst af unnið við kennslu, náttúruvernd og umhverfismennt. Síðustu 13 árin hafa þó nær eingöngu farið í ritstörf.

„Ég var að ljúka við ævisögu Sigurðar Þórarinssonar, jarðfræðings og söngvaskálds; „Sigurður Þórarinsson. Mynd af manni.“ Hann fæddist árið 1912 og lést árið 1983. Á meðan hann lifði vissi öll þjóðin hver hann var en hann er mörgum gleymdur nú. Ævisagan er tveggja binda verk, 800 síður með 700 myndum og kemur vonandi út í næstu eða þarnæstu viku.“

Byggðu húsið fyrir 35 árum

Sigrún býr í fallegu húsi sem þau fjölskyldan byggðu fyrir 35 árum.

„Húsið var á mörkum Reykjavíkur í Selásnum og úr gluggum þess útsýni í allar áttir. Nú hefur mikið verið byggt hér í kring en við erum engu að síður á mörkum borgar og heiðalanda sem er dýrmætt og reyndar ákaflega óvenjulegt í veröldinni. Flestar borgir eru umluktar landbúnaðarlandi. En ef ég ætti að lýsa heimilinu mínu þá er það fyrst og fremst notalegt.“

 

Alin upp af fólki sem féll aldrei verk úr hendi

Hvað getur þú sagt mér um áhuga þinn á íslensku handverki?

„Ég er alin upp hjá fólki sem aldrei féll verk úr hendi. Fóstra mín saumaði og prjónaði, ekki bara föt og hagnýta hluti heldur líka alls kyns veggteppi, púða, áklæði á stóla og margt fleira. Karólína Guðmundsdóttir vefnaðarkona var systir fóstra míns en hún útbjó og seldi alls kyns munstur og óf java til útsaums og gaukaði oft að mér efni til slíks. Hún var mikil listakona og brautryðjandi eins og sjá má á sýningunni um hana sem nú hefur verið sett upp á Árbæjarsafni.“

Hjá Heimilisiðnaðarfélagi Íslands hefur orðið vart mikils áhuga fólks á útsaumi eins og krosssaumi sem var mjög vinsæll um miðja síðustu öld. Inni á heimili Sigrúnar eru tveir fallegir púðar frá þeim.

„Það er lítið að hafa í búðum af munstrum og efnum í púða. Sú hugmynd kviknaði í sambandi við sýninguna á Árbæjarsafni um Karólínu vefara að velja nokkur af hennar munstrum og útbúa pakkningar með efni og garni í ákveðið munstur. Fólk gæti þá auðveldlega saumað litla mynd sem síðan mætti ramma inn eða setja í púða eða tösku.

Þetta er sýnishorn af tveim slíkum púðum. Hægt er að fá miklu fleiri munstur og liti en pakkningarnar eru til sölu hjá Heimilisiðnaðarfélaginu í Nethyl 2, á Árbæjarsafni og víðar.“

 

Heimilið er griðastaður

Áttu þér uppáhaldsstað heima?

„Húsið mitt er ákaflega opið, lítið um afmarkaða staði. Hvaða staður er í uppáhaldi fer eftir því hvað ég er að gera hverju sinni.“

Sigrún segir gott að vera í umhverfi sem vekur virðingu fyrir náttúrunni.

„Það er líka gott að vera innan um hluti sem lög hefur verið hugsun í og vinna, vandvirkni og natni. Þess vegna er gott að hafa í kringum sig góðar bækur, listmuni og fallegt handverk og að borða vel útbúinn mat.“

til baka