Arsenal lék á als oddi og hreinlega keyrði yfir nágranna sína í Tottenham í fyrri hálfleik í leik liðanna á Emirates-vellinum í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Emile Smith-Rowe, Pierre-Emerick Aubameyang og Bukayo Sako skoruðu mörk heimamanna í sigrinum glæsilega en Heung-Min Son klóraði í bakkann fyrir gestina undir lok leiks. Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.