Hinn 66 ára gamli Pálmi Guðmundsson er stofnandi stefnumótasíðunnar Deit.is. Pálmi sem býr á Tenerife hjálpar öðru fólki að finna ástina á annan hátt en á Tinder en hann segir að oft sé dæmt út frá einni mynd á Tinder.
„Ég er bara rómantískur maður og sá í hendi mér að það væri þörf á einhverju öðru og betra kerfi,“ segir Pálmi. „Ég vil að einhleypt fólk kynnist ástinni. Það gefur mikið að finna réttu persónuna.“
„Á Tinder setur þú kyn, aldur og búsetu þegar þú ferð að leita. Eins og í mínu tilfelli, sérðu konur í kringum þig og þú verður annað hvort að velja eða hafna þeim. Þú verður að velja eingöngu út frá útlitinu,“ segir Pálmi. Hann líkir þessu saman við að selja íbúð og setja mynd af einum glugga í auglýsinguna. Fólk dæmir bara út frá einu atriði. Hann segir það ekki alveg virka.
Á stefnumótasíðunni hans Pálma er mun meiri áhersla lögð á áhugamál og persónuleika fólks en á öðrum stefnumótasíðum. „Fólk getur verið mjög áhugavert þó það sé ekki eitthvað topp módel og þess vegna ákvað ég að gera þetta svolítið öðruvísi og lagði mikla vinnu við að setja þetta upp og skilgreina þörfina fyrir áhugaverða stefnumótasíðu. Ekki bara myndir, heldur margvíslegar upplýsingar, sem gefur notendum kost á að leita eftir og finna persónu sem viðkomandi gæti átt samleið með.“
Pálmi segir að á síðunni Deit.is ræður fólk hversu ítarlegar upplýsingar það gefur upp. Í leitarkerfinu er hægt að leita sérstaklega eftir einstaklingi á ákveðnum aldri, sem býr á ákveðnum stað, áhugamálum og fleira. Sumir velja að gefa upp líkamslýsingu, til dæmis hversu hávaxið það er eða hvort það sé í kjörþyngd.
„Á Deit.is er hægt að skrá allt að 57 áhugamál, en á öðrum stefnumótasíðum er fjöldinn innan við 10 atriði. Á Deit.is er hægt að merkja við allt að 67 atriði varðandi persónuleikann,“ segir Pálmi.
Þegar farið er að leita að tilvonandi lífsförunaut er leitað til dæmis út frá áhugamálum eða mannkostum. Þá er hægt að senda textaskilaboð. Einnig er boðið upp á símaspjall og vídeóspjall á stefnumótasíðunni. „Þetta er algjör snilld og þetta er ekki til á öðrum íslenskum stefnumótasíðum. Þarna getur fólk farið hægt og rólega í þetta, án þess að gefa upp símanúmer eða netfang,“ segir hann.
Pálmi segir að þótt sumir séu feimnir er ein hugguleg mynd samt mjög góð byrjun. Því meira sem fólk setur inn um sjálft sig því meiri möguleiki er að finna rétta persónuna. „Svo eru sumir sem veigra sér við þetta og finnst þetta kannski asnalegt. En þetta fyrirkomulag er að ryðja sér til rúms víða í hinum stóra heimi og stefnumótasíðum fjölgar stöðugt.“
Eru einhverjir búnir að finna ástina?
„Já, ég hef nú heldur betur grun um það. Þeim fækkar sem eru inná af því þeir eru búnir að finna hana, það er alveg gefið mál. Svo koma alltaf nýir, þetta er bara endurnýjun.“
Meðalaldurinn á Deit.is er um 50 ár. Fólk er á aldrinum 18 ára og upp í 80 ára, en flestir eru þó á aldrinum 40 – 67 ára. Karlmenn eru aðeins í meirihluta.
Pálmi segir að 30 daga áskrift að Deit.is kosti innan við þúsund krónur sem er ekki mikið þegar ástin er annars vegar. Vefsíðan hefur meðal annars komið sér vel í kórónuveirufaraldrinum. Þetta hafi verið góður tími til þess að nota stefnumótasíðuna enda lítið hægt að fara út á lífið.