fös. 22. okt. 2021 16:20
Af 697 leigusamningum sem voru þinglýstir í september voru 502 á höfuðborgarsvæðinu.
Þinglýstum leigusamningum fækkar umtalsvert

Alls voru 697 þinglýstir leigusamningar á landinu í september sem gerir 22,8% fækkun frá fyrri mánuði og 35,3% fækkun ef miðað er við fjölda þinglýsinga í september á síðasta ári.

Þetta kemur fram í tilkynningu Þjóðskrár, sem tók saman fjölda þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði eftir landshlutum.

Af þessum 697 samningum voru 502 af höfuðborgarsvæðinu og fækkaði þeim um 23,4% frá fyrri mánuði, og um 32,8% frá september síðasta árs.

Þá voru 195 leigusamningar þinglýstir utan höfuðborgarsvæðisins, þar af 28 á Suðurlandi, 11 á Austurlandi, 60 á Norðurlandi, 4 á Vestfjörðum, 23 á Vesturlandi og 69 á Suðurnesjum.

Hægt er að skoða frekari upplýsingar á vef Þjóðskrár.

 

 

til baka