fim. 28. okt. 2021 11:01
Lambalæri með kartöflugratíni og rauðvínssósu

Það er fátt sem toppar góðan sunnudagsmat og þar er lambalæri efst á blaði enda allsendis frábær matur. Ljóst er að lambalærið lifir góðu lífi því lesendur matarvefsins sækja mikið í slíkar uppskriftir og hér erum við með frábæra uppskrift frá Berglindi Hreiðars á Gotteri.is sem býður upp á rauðvínssósu og kartöflugratín með – ásamt gljáðum gulrótum.

Lambalæri með kartöflugratíni og rauðvínssósu

Fyrir 4-6

Lambalæri uppskrift

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 170°C.
  2. Þerrið lambalærið og berið á það smá ólífuolíu.
  3. Skerið aðeins í lærið á nokkrum stöðum, takið hvítlauksrifin í 2-3 hluta og stingið ofan í raufarnar.
  4. Kryddið vel með lambakjötskryddi allan hringinn.
  5. Setjið í steikarpott ásamt gulrót og lauk (fyrir betra soð) ásamt vatninu.
  6. Setjið lokið á og inn í ofn í um 1,5 klukkustundir eða þar til kjarnhiti er á bilinu 60-70°C eftir því hversu vel þið viljið hafa það steikt.

Kartöflugratín uppskrift

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 190°C.
  2. Flysjið kartöflurnar og skerið þær síðan í þunnar sneiðar (1/2 cm eða þynnri), leggið til hliðar.
  3. Skerið rauðlaukinn í þunnar sneiðar og rífið niður hvítlaukinn. Steikið upp úr smjöri við meðalhita þar til mýkist, kryddið til með salti og pipar. Takið af hellunni og geymið.
  4. Raðið síðan saman í eldfast mót: einu lagi af kartöflum, smá af laukblöndu, smá timían, salt og pipar … endurtakið síðan þar til allar kartöflur eru búnar.
  5. Þá má hella rjómanum yfir allt saman og rífa vel af osti yfir allt að lokum.
  6. Bakið í ofninum undir álpappír í um klukkustund, takið álpappírinn þá af og leyfið ostinum aðeins að gyllast, í um 10 mínútur í viðbót.

Ofnbakaðar gulrætur

Aðferð:

  1. Skolið gulræturnar (flysjið ef þess þarf).
  2. Setjið gulrætur ásamt öðrum hráefnum saman í eldfast mót, veltið öllu saman og bakið í um klukkustund eða þar til gulræturnar eru mjúkar í gegn.

Rauðvínssósa uppskrift

Aðferð:

  1. Saxið skalottlaukinn smátt og rífið niður hvítlauksrifin.
  2. Steikið báðar tegundir af lauk upp úr smjöri við meðalhita, kryddið til með salti og pipar.
  3. Hellið næst balsamediki yfir laukinn og leyfið því að sjóða niður (gufa upp).
  4. Því næst má hella rauðvíninu yfir allt og leyfa því sömuleiðis að sjóða aðeins niður og malla í nokkrar mínútur.
  5. Bætið þá kjötsoði (frá lambalærinu) í pottinn ásamt vatni, lárviðarlaufi og timían, leyfið að malla.
  6. Smakkið til með krafti og kryddi og þykkið með sósujafnara.
  7. Sósan má malla eins lengi og þarf, hún verður bara betri fyrir vikið.
til baka