mán. 25. okt. 2021 09:13
Margot Robbie og Ryan Gosling fara með hlutverk Barbie og Ken í væntanlegri hasarmynd.
Robbie og Gosling verða Barbie og Ken

Eva Ruza flyt­ur pistla um stjörn­urn­ar á hverj­um degi á sinn ein­staka hátt á K100.

Come on Barbie, let's go party! Hver elskar ekki þetta lag og hver elskar hugmyndina um að Margot Robbie og Ryan Gosling skelli sér í hlutverk Barbie og Ken?

Ég veit að ég elska það rosa mikið. Margot og Ryan hafa skrifað undir samninga um að taka að sér hlutverkin frægu, og haldið ykkur fast – þetta verður hasarmynd!

Ryan Gosling hafði áður þurft að hafna hlutverkinu sökum anna í öðrum verkefnum, en þau verkefni færðust til, sem gerir það að verkum að hann getur skellt sér í Ken-hlutverkið.

Heimildarmenn mínir í Holly hafa svo sem engar frekari fréttir um hver söguþráðurinn verður eða hvenær tökur hefjast. Fréttamiðillinn Deadline segir samt sem áður að verið sé að gæla við frumsýningu árið 2022.

Jesús minn almáttugur! Ég er að reyna að ímynda mér Barbie og Ken í hasarmynd – en með Margot og Ryan um borð hef ég engar áhyggjur. Þetta verður veisluhlaðborð. 

View this post on Instagram

A post shared by Entertainment Tonight (@entertainmenttonight)

 

 

til baka