Áhrifavaldurinn Sólrún Diego ákvað að eyða vetrarfríinu með fjölskyldu sinni á Ítalíu. Fjölskyldan flaug út fyrir helgi og var með lítið annað planað en að njóta sín og hafa gaman.
Sólrún sýndi frá ferðinni á Instagram og virðist fjölskyldan hafa byrjað ferðina í höfuðborg landsins, Róm.
Á sunnudag fóru þau svo í dýragarð. Fjölskyldan leigði sér bíl og virðist hafa keyrt út úr borginni í ítalska sveitasælu.