mán. 3. okt. 2022 08:11
Indónesískir hermenn halda á dreng að loknum fótboltaleik Arema FC og Persebaya Surabaya.
Forseti Arema FC biðst afsökunar

Forseti indónesíska knattspyrnufélagsins Arema FC hefur beðist afsökunar á harmleiknum sem varð um helgina þegar 125 létust á leikvangi félagsins.

fjöldi

„Ég, sem forseti Arema FC, mun bera fulla ábyrgð á atvikinu sem átti sér stað. Ég bið fórnarlömbin, fjölskyldur þeirra, alla Indónesíubúa og Liga 1 innilegrar afsökunar, sagði hann í sjónvarpsávarpi.

knattspyrnu

Ríkisstjórn Indónesíu hefur beðið lögreglu landsins um að finna og refsa þeim sem bera ábyrgð á troðningnum sem varð á leikvanginum.

„Við biðjum lögregluna um að finna sökudólgana á næstu dögum sem hafa framið glæpi,“ sagði ráðherra öryggismála, Mahfud MD, í yfirýsingu.

Starfshópur hefur verið skipaður vegna rannsóknar málsins.

 

Harmleikurinn varð eftir að aðdáendur heimaliðsins Arema FC ruddust inn á völl Kanjuruhan-leikvangsins eftir 3-2 tap gegn erkifjendunum Persebaya Surabaya.

til baka