mán. 3. okt. 2022 09:25
Ungir menn ganga framhjá skilti ţar sem samlandar eru hvattir til ţáttöku í rússneska hernum, í Pétursborg.
Ţúsundir skráđar í herinn fyrir mistök

Skráningarstjóri hersins í austurhluta Rússlands hefur veriđ leystur frá störfum eftir ađ hafa kallađ inn ţúsundir manna í herinn, til ţess ađ berjast í Úkraínu, fyrir mistök. 

„Skráningarstjórinn í Kabarovsk-hérađi, Júrí Laíkó, hefur veriđ leystur frá störfum. Ţetta mun ţó ekki hafa nein áhrif á framfylgni ţeirra verkefna sem forsetinn hefur sett okkur,“ segir í Telegram-skilabođum frá hérađsstjóranum á svćđinu, Mikhaíl Degtíaríov. 

Fór hann ekki nánar yfir ástćđur ţess ađ skráningarstjórinn var látinn taka pokann sinn, en sagđi ţó ađ röđ mistaka hafi átt sér stađ í innköllunum. 

„Af nokkur ţúsund samlöndum okkar sem hafa veriđ bođađir á skráningarskrifstofur hersins undanfarna 10 daga, uppfyllti um helmingur ţeirra ekki skilyrđi fyrir herkvađningu,“ segir hérađsstjórinn. 

„Herkvađningin á einungis ađ ná til ţeirra hópa sem samţykktir hafa veriđ af varnarmálaráđuneytinu og forsetanum. Hvers konar misbeitingu á henni verđur ađ stöđva,“ sagđi hann einnig. 

Vladimír Pútín Rússlandsforseti tilkynnti um herkvađningu á varaliđi hersins 21. september, sem ná átti til 300 ţúsund manna. 

 

til baka