mán. 3. okt. 2022 12:08
Erling Haaland er engum líkur.
Hefur komið að 20 mörkum í tíu leikjum

Ótrúleg frammistaða norska knattspyrnumannsins Erlings Haalands með Manchester City á yfirstandandi tímabili hefur væntanlega ekki farið fram hjá mörgum.

Haaland er þegar búinn að skora 14 mörk í aðeins átta leikjum í ensku úrvalsdeildinni, auk þess sem hann hefur lagt upp þrjú mörk til viðbótar.

Hann hefur þá skorað þrjú mörk í tveimur leikjum í Meistaradeild Evrópu, sem þýðir að Norðmaðurinn magnaði hefur komið að alls 20 mörkum í aðeins tíu leikjum á tímabilinu, ellefu leikjum ef Samfélagsskjöldurinn er tekinn með en þar kom Haaland ekki að marki í tapi gegn Liverpool.

Þessi árangur þarf ekki að koma mikið á óvart enda er ferill hins 22 ára gamla Haalands lyginni líkastur til þessa.

Alls hefur hann skorað 152 mörk í 194 leikjum í öllum keppnum með Man. City, Borussia Dortmund, Red Bull Salzburg og Molde og lagt upp 39 mörk að auki.

Sé mörkum hans í fjórðu deild Noregs með varaliðum Bryne og Molde bætt við eru mörkin 172 í 212 leikjum.

Haaland hefur þá ekki slegið slöku við með norska A-landsliðinu þar sem hann hefur þegar skorað 21 mark í 23 landsleikjum og skoraði 30 mörk í 46 leikjum með yngri landsliðum Noregs.

til baka