Milljarðamæringurinn Elon Musk, sem nýverið festi kaup á samfélagsmiðlinum Twitter, hefur boðað það sem hann kallar „sakaruppgjöf“ í næstu viku, fyrir notendur sem hafa verið bannaðir á miðlinum.
Ákvað hann þetta í kjölfarið af því að meirihluti kaus með því að það yrði gert í skoðanakönnun sem hann birti sjálfur á miðlinum, sem gilti í 24 klukkustundir.
Skilyrði að hafa ekki brotið lög?
„Fólkið hefur talað. Sakaruppgjöfin hefst í næstu viku,“ tísti Musk í gærkvöldi eftir að meirihluti notenda kaus með tillögunni, sem hljóðaði svo:
„Ætti Twitter að bjóða upp á almenna sakaruppgjöf fyrir bannaða notendur, hafi þeir ekki brotið lög eða tekið þátt í „spammi“?
https://www.mbl.is/frettir/erlent/2022/11/20/twitter_adgangur_trumps_ordinn_virkur/
Donald Trump og Andrew Tate eru á meðal þeirra sem hafa endurheimt aðganga sína eftir að Musk eignaðist miðilinn.