fös. 25. nóv. 2022 19:40
Bjarni Ófeigur Valdimarsson í leik með Skövde á síðasta tímabili.
Bjarni markahæstur í jafntefli

Bjarni Ófeigur Valdimarsson hélt uppteknum hætti með liði sínu Skövde þegar það gerði 28:28-jafntefli við Önnered í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik karla í kvöld.

Stórskyttan Bjarni Ófeigur skoraði sjö mörk fyrir Skövde og var markahæsti leikmaður liðsins. Gaf hann auk þess eina stoðsendingu.

Markahæstur í leiknum var hins vegar Christoffer Brännberger með tíu mörk fyrir Önnered.

Skövde er eftir jafnteflið í 5. sæti sænsku deildarinnar með 13 stig eftir 12 leiki.

Tryggvi Þórisson skoraði eitt mark fyrir Sävehof, sem vann 29:27-útisigur á botnliði Redbergslid.

Sävehof er því áfram í 2. sæti deildarinnar, nú með 19 stig eftir 12 leiki.

til baka