34 ára sömul bandarísk kona, Heather Shaw, hefur þurft að venjast því að vera alveg afskaplega lík hinum bráðfyndna grínleikara Jim Carrey. Sjálf er hún uppistandari og grínisti og heldur úti TikTok-síðu þar sem hún hefur meðal annars vakið athygli á þessu og hafa myndbönd hennar farið sem eldur um sinu á internetinu.
Hún segist alla tíð hafa stefnt að því að verða grínisti og því sé dálítið kaldhæðnislegt að hún beri nánast sama andlit og grínleikarinn góðkunni.
„Hvað annað á ég að gera?“
„Hvað annað á ég að gera? Ímyndaðu þér að ég væri læknir með þetta andlit,“ sagði Heather í einu vinsælu myndbandi þar sem hún svarar spurningu fylgjanda.
Heather hefur meðal annars hermt eftir nokkrum þekktum atriðum úr kvikmyndum þar sem Jim Carrey fer með aðalhlutverkið og þykir hún ná hlutverkum hans merkilega vel.
Hún segist þó, þrátt fyrir endurteknar spurningar, alls ekki vera skyld leikaranum en hefur vitað lengi af líkindum þeirra.
Hér má sjá nokkur skemmtileg myndbönd frá Heather þar sem glöggt má sjá líkindin milli hennar og Jim Carrey.
Hún segist þó ekki getað leikið eftir eitt vinsælasta hlutverk Jims Carreys, Trölla (The Grinch), eins og sjá má hér: