fös. 27. jan. 2023 11:40
Hlustandi nokkur, sem hringdi inn átti afar erfitt með að lýsa því sem veldur honum mestri klígju í Ísland vaknar á K100
Kúgaðist í beinni og átti erfitt með tal

Hlustandi nokkur átti erfitt með að tjá sig þegar talið barst að hlutum sem fólk þykir ógeðslegir, í morgunþættinum Ísland vaknar, í vikunni. Viðkomandi hringdi inn til að lýsa því hvað væri það sem honum þætti ógeðslegast af öllu – sem er í stuttu máli, stakt hár.  

„Ef þú heldur á einu hári –“ byrjaði hlustandinn áður en hann kúgaðist rækilega í símann.

„Þú heldur á einu hári á milli beggja handa, og ert með vísifíngur og löngutöng, sitthvoru megin og dregur svo eftir því ... Það er ógeð,“ sagði hlustaninn á milli þess sem hann kúgaðist og kúgaðist en Kristín Sif og Ásgeir Páll gjörsamlega veltust um af hlátri í stúdíóinu á meðan. 

Kristín Sif var þó nokkuð sammála hlustandanum, með hárið fyrrnefnda, en einnig lýsti hún því hversu viðbjóðslegt henni þætti að rífa í sundur stálull. 

Fleiri hlustendur hringdu inn í þáttinn og tjáðu sig um málið en hægt er að hlusta á umræðurnar áhugaverðu – og klígjukenndu í spilaranum hér að neðan. 

 

 

til baka