sun. 29. jan. 2023 12:00
Fyrsta lagið af væntanlegri plötu Breks er nú komið út.
Gefa út nýtt lag rétt fyrir tónleikaferð til Bandaríkjanna

Hljómsveitin Brek hefur gefið út nýtt lag, lagið Hálftómt glas en það er fyrsta lagið af væntanlegri plötu sveitarinnar. Lagið er samið af öllum meðlimum hljómsveitarinnar en forsöngvarinn Jóhann Ingi Benediktsson samdi textann.

Brek mun halda í tónleikaferðalag til Bandaríkjanna á næstu dögum, að því er fram kemur í tilkynningu frá sveitinni.

Spennandi tímar framundan

Brek hlaut íslensku tónlistarverðlaunin 2022 fyrir Plötu ársins í flokki Þjóðlaga- og heimstónlistar fyrir sína fyrstu plötu. Á þessu ári er margt framundan hjá sveitinni en þar ber fyrst að nefna ferð til Bandaríkjanna til að spila á „showcase“-hátíðinni Folk Alliance International sem fer fram í Kansas City 1.-5.febrúar næstkomandi. Fleiri tónleikaferðir, bæði erlendis og hérlendis, eru svo fyrirhugaðar síðar á árinu.

Fjölskúðug notkun íslenskrar tungu

Hljómsveitin Brek leikur aðallega frumsamda, alþýðuskotna, tónlist með áhrifum úr ýmsum áttum, en meðlimir sveitarinnar leggja mikla áherslu á að skapa áhugaverða en notalega stemningu í hljóðfæraleik sínum. Auk þess er lögð áhersla á fjölskrúðuga notkun íslenskrar tungu í textagerð.

Hljómsveitina skipa Harpa Þorvaldsdóttir söngkona og píanóleikari, Jóhann Ingi Benediktsson gítarleikari og söngvari, Guðmundur Atli Pétursson mandólínleikari og Sigmar Þór Matthíasson kontrabassaleikari.  

Hér má heyra lagið Hálftómt glas sem er nú komið á allar helstu streymisveitur.

 


 

til baka