fös. 27. jan. 2023 10:38
„Þetta er svo alveg tilvalinn réttur í „meal prep“ og hægt að elda kjúklinginn fyrir nokkra daga og eiga sósuna til í kæli.
Ómótstæðilega kjúklingasalatið hennar Völlu

„Matarmikil salöt hafa alltaf verið í miklu uppáhaldi hjá mér og þetta er líklega í efstu þremur sætunum. Grísk matargerð er svo dásamleg, fersk, einföld hráefni og góð krydd. Það tekur ekki langan tíma að græja þetta salat og enn styttri tíma ef kjúklingurinn er tilbúinn í marineringunni þegar á að baka hann,“ segir Valgerður Gréta Gröndal um þetta geggjaða salat sem þið verðið að prófa. 

„Ég nota gríska jógúrt bæði í marineringuna og í tzatziki sósuna og ein dós passar akkúrat í uppskriftina. Ferskt salatið ásamt bragðmiklum kjúklingnum, salatostinum, sem á rætur sínar að rekja til Grikklands og sósunni góðu gerir þetta að fullkominni blöndu.“

Grísk skál með kjúklingi, avocado og tzatziki

Fyrir fjóra

Kjúklingur og marinering

Avocadosalat

Tzatziki jógúrtsósa

Aðferð:

  1. Blandið saman í skál grískri jógúrt, olíu, hvítlauk, skallottlauk, reyktu paprikudufti, oregano, salti og pipar.
  2. Skerið kjúklinginn í bita og setjið í jógúrtmarineringuna.
  3. Marinerið í að minnsta kosti 30 mín.
  4. Á meðan kjúklingurinn marinerast er gott að útbúa tzatziki sósuna.
  5. Rífið agúrkuna á rifjárni, setjið í skál og stráið salti yfir.
  6. Setjið í sigti og látið safann renna af í ca. 15 mín.
  7. Hrærið saman jógúrt, sítrónusafa, hvítlauk og dilli.
  8. Þegar mesti safinn er runninn af agúrkunni þrýstið þá skeið ofan á og kreistið sem mest af safanum úr.
  9. Blandið saman við jógúrtblönduna.
  10. Geymið í kæli þar til salatið er borið fram.
  11. Hitið ofninn í 200°C. Raðið marineruðum kjúklingabitunum á bökunarplötu og bakið í 10 mín, snúið bitunum við og bakið áfram í 5 mín.
  12. Í lokin er gott að stilla á grillið í ofninum og brúna kjúklinginn í 1-2 mín.
  13. Á meðan kjúklingurinn er í ofninum er gott að skera grænmetið í salatið og raða því á bakka eða í skálar, allt eftir því hvort fólk fái sér sjálft af hverju grænmeti eins og um salatbar væri að ræða eða salatinu blandað í stóra skál og toppað með kjúklingnum og sósu.
  14. Njótið!

Höfundur: Valgerður Gréta Gröndal

til baka