lau. 28. jan. 2023 10:00
Gulu flísarnar í eldhúsinu gefa eldhúsinu skemmtilegt yfirbragð. Það gera flísarnar á gólfinu á yfirbyggðu svölunum líka.
135 milljóna draumaíbúð með útsýni

Við Grandaveg 42B í Reykjavík er að finna glæsilega 151 fm íbúð sem er í blokk sem byggð var 2016. Íbúðin er á annarri hæð og státar af einstöku útsýni út á sjó. Íbúðin er líka með yfirbyggðum 22 fm svölum, sem er eftirsótt hérlendis.

Sem er svo sem ekki skrýtið þar sem allra veðra er von – sérstaklega yfir vetrarmánuðina. Það sem vekur athygli er hvernig gólfið er flísalagt á svölunum með heillandi munstri.

Í íbúðinni eru sérsmíðaðar innréttingar og í eldhúsinu taka gular flísar sitt pláss en þær eru hafðar á milli efri og neðri skápa. Þær fara vel við dökkbrúnar innréttingar og hvíta sprautulakkaða efri skápa.

Af fasteignavef mbl.is: Grandavegur 42B

til baka