fös. 27. jan. 2023 17:30
Channing Tatum (t.v.) snýr aftur í þriðju Magic Mike myndinni í kringum Valentínusardaginn.
Dansar enn á ný, ber að ofan, á hvíta tjaldinu

Eva Ruza flyt­ur pistla um stjörn­urn­ar á hverj­um degi á sinn ein­staka hátt á K100.

Það er mikil spenna komin í skvís því Mike vinur minn er á leiðinni aftur á hvíta tjaldið með öllum vinum sínum og þar ætla þeir að dansa berir að ofan. 

View this post on Instagram

A post shared by Channing Tatum (@channingtatum)

 

Já, ég er að tala um kvikmyndina Magic Mike sem hefur slegið í gegn í hvert sinn sem hún hefur komið út. Þriðja myndin er núna á leiðinni til okkar og mun birtast í kvikmyndahúsum í kringum Valentínusardaginn og er það hjartaknúsarinn Channing Tatum og bomban Salma Hayek sem fara með aðalhlutverkin. 

View this post on Instagram

A post shared by Channing Tatum (@channingtatum)

 

Channing sagði einmitt í viðtali um daginn að honum hefði kviðið fyrir því að leika á móti Sölmu þar sem hann var svo hrikalega skotinn í henni þegar hann var yngri.

 

Hann sagði einnig í viðtali við People Magazine að hann vildi sjá að þessi lokakafli, sem ber titilinn „Magic Mike's Last Dance“, væri eins og hálfleikurinn í Super Bowl í strippi. 

View this post on Instagram

A post shared by Revista Estilo (@estilo_veracruz)

 

Ég get allavega sagt ykkur það að ég er strax sest með poppið og bíð eftir minni Super Bowl sýningu með Channing mínum. 

til baka