lau. 28. jan. 2023 14:00
Will hefur verið mjög vinsæll í Love Island en nýtt myndband af honum þar sem hann virðist handleika hvítt duft gæti breytt því eitthvað.
Love Island-heimurinn titrar eftir dullarfullt myndband

Eva Ruza flyt­ur pistla um stjörn­urn­ar á hverj­um degi á sinn ein­staka hátt á K100.

Love Island-heimurinn titrar um þessar mundir eftir að myndband af sveitastráknum ljúfa Will Young hefur farið um eins og eldur í sinu. 

View this post on Instagram

A post shared by Hulu (@hulu)

 

Í 48 sekúndna klippu má sjá Will skemmta sér konunglega ásamt vinum sínum í sundlaugarpartíi í Króatíu – að sjálfsögðu áður en þættirnir fóru í loftið þar sem þeir gerast í rauntíma. 

Sést Will taka pínulítinn poka upp úr tösku sem hann er með hangandi utan á sér og í pokanum virðist vera hvítt duft ...

Hér má sjá myndbandið umrædda.

View this post on Instagram

A post shared by UK Hood Culture (@ukhoodculture)

 

Will lítur í kringum sig áður en hann tekur pokann upp og snýr svo baki í myndavélina þannig að ekki sést hvað hann gerir við pokann. 

Nú er fólk æst og heldur því fram að þarna hafi fíkniefnaneysla Wills náðst í beinni. 

View this post on Instagram

A post shared by Will Young (@farmer_will_)

 

Will er búinn að vera gríðarlega vinsæll í villunni og sýnist mér þetta ekki ætla að hafa nein stórkostleg áhrif á vinsældir hans – allavega ekki ennþá.

View this post on Instagram

A post shared by Will Young (@farmer_will_)

 

ITV, sem framleiðir Love Island, klórar sér eflaust í hausnum núna, því fyrir stuttu var Haris Namani sendur heim úr villunni eftir að myndband af honum kýla annan mann birtust á samfélagsmiðlum. 

View this post on Instagram

A post shared by The Sun (@thesun)

 

Kallar fólk eftir því að betra bakgrunnstékk sé gert á keppendum til að koma í veg fyrir að draugar fortíðarinnar komi upp á yfirborðið.

til baka