lau. 28. jan. 2023 15:01
Lekkerasti eftirréttur síðari ára

Hér erum við með hreint ótrúlegan eftirrétt úr smiðju Berglindar Hreiðars á Gotteri.is sem ætti að gera allt vitlaust við matarborðið.

Ostakaka með karamellukeim

Uppskrift dugar í 8-10 glös eftir stærð

Botn

Aðferð:

  1. Setjið kexið í blandarann og maukið þar til áferðin minnir á sand.
  2. Hellið kexinu í skál og blandið bræddu smjörinu saman við með sleikju.
  3. Skiptið kexblöndunni á milli glasanna og kælið áður en ostakökufyllingin fer yfir.

Ostakökufylling

Aðferð:

  1. Þeytið rjómaost, sykur, flórsykur og fræ úr vanillustöng saman í hrærivélinni þar til létt og slétt blanda hefur myndast.
  2. Vefjið þá jógúrt og þeyttum rjóma varlega saman við blönduna með sleikju og skiptið á milli glasanna, sléttið úr eins og unnt er.
  3. Kælið áður en þið toppið með karamellu og skrauti.

Karamella og toppur

Aðferð:

  1. Bræðið saman karamellur og rjóma þar til slétt karamellusósa hefur myndast, takið af hellunni og leyfið að ná stofuhita.
  2. Setjið um eina matskeið af karamellusósu yfir hverja ostaköku og skreytið með karamellukúlum og ferskum blómum.

 

til baka