miđ. 31. maí 2023 17:37
Lautaro Martínez hugar ađ Lionel Messi, liđsfélaga sínum í argentínska landsliđinu.
Messi skrópađi í brúđkaupi fyrir Coldplay

Knattspyrnumađurinn Lioenl Messi var hvergi sjáanlegur í brúđkaupi Lautoro Martínez og Agustina Gandolfo á dögunum en sá síđarnefndi gifti sig viđ Como-vatn á Ítalíu um síđustu helgi.

Martínez og Messi eru liđsfélagar í argentínska landsliđinu en ţeir Enzo Fernandez, Emiliano Martínez og Alexis Mac Allister voru allir mćttir til Ítalíu til ţess ađ fagna međ Martínez.

Messi ákvađ ađ skella sér frekar á tónleika međ hljómsveitinni Coldplay ásamt fyrrverandi liđsfélaga sínum hjá Barcelona, Cesc Fabregas.

Messi, sem er 35 ára gamall, er samningsbundinn París SG í Frakklandi en samningur hans rennur út hinn 1. júlí í sumar.

Hann hefur međal annars veriđ orđađur viđ endurkomi til Barcelona og ţá hefur hann einnig veriđ orđađur viđ félög í Sádi-Arabíu.

 

til baka