lau. 2. mars 2024 07:54
Söngkonan Geri Halliwell Horner er brugðið yfir fréttum síðustu daga.
Í áfalli vegna óviðeigandi skilaboða eiginmanns

Hjónaband fyrrum kryddpíunnar Geri Halliwell er sagt standa á brauðfótum eftir að fjölmörg ástleitin símaskilaboð eiginmanns hennar til annarra kvenkyns starfsmanna Red Bull Formúlu 1 voru lekin til fjölmiðla.

Um er að ræða 79 skjáskot og hundruðir textaskilaboða á Whatsapp.

Christian Horner, eiginmaður Halliwell, hefur verið ásakaður um óviðeigandi og stjórnandi hegðun í garð kvenkyns starfsmanns Red Bull Formúlu 1 keppnisliðsins en Horner er liðstjóri þess. Hann hefur neitað öllum ásökunum. Rannsókn fór fram innan fyrirtækisins sem háð var af utanaðkomandi lögfræðingi og var Horner hreinsaður af ákærunum. Hins vegar er óljóst hvort þessi leki komi til með að opna málið á nýjan leik. 

Halliwell er sögð niðurlægð og í áfalli yfir fréttunum. Hún hafi átt erfitt með svefn og grætur mikið, segja heimildarmenn The Sun og Daily Mail. Fram til þessa hefur hún staðið þétt við hlið hans. 

https://www.mbl.is/sport/frettir/2024/02/29/hreinsadur_af_asokunum/

 

til baka