þri. 30. apr. 2024 11:00
Karl Bretakonungur í sinni fyrstu opinberu heimsókn frá því að hann greindist með krabbamein fyrr á árinu.
Myndir: Karl snúinn aftur til opinberra starfa

Karl III. Bretakonungur er snúinn aftur til opinberra starfa eftir að hafa tímabundið stigið til hliðar í kjölfar þess að hann greindist með krabbamein fyrr á árinu.

Sást konungurinn ásamt Kamillu Bretadrottningu, eiginkonu sinni, í sínum fyrstu opinberu erindagjörðum í dag í táknrænni heimsókn í krabbameinsmeðferðarstöð í Macmillan-háskólasjúkrahúsinu í miðborg Lundúna.

https://www.mbl.is/folk/frettir/2024/04/26/karl_a_batavegi_og_snyr_aftur_til_starfa/

 

Brostu til almennings

Fyrir utan meðferðarstöðina brostu hjónin og veifuðu til fjölmiðla og fólks sem hafði safnast þar saman áður en þau héldu inn þar sem heilbrigðisstarfsfólk tók á móti þeim.

Var heimsóknin í meðferðarstöðina í morgun fyrsti viðburðinn af mörgum á komandi vikum.

https://www.mbl.is/folk/frettir/2024/04/26/karl_iii_sagdur_mjog_veikur/

 

til baka