Leikkonan Trina McGee kom aðdáendum sínum á óvart þegar hún greindi frá því að hún ætti von á barni 54 ára. Það voru ekki bara aðdáendur hennar sem urðu steinhissa heldur líka uppkomin börn hennar sem fréttu af væntanlegu systkini á netinu.
Talaði við börnin einu sinni í viku
Börnin fengu vægt áfall en McGee á þrjú uppkomin börn sem eru á aldrinum 25 til 31 árs.
„Ég setti eitthvað á Facebook. Ég hélt að þetta skipti ekki miklu máli og hugsaði með mér að ég myndi hringja í börnin seinna. Þau eru fullorðin og lifa sínu lífi,“ sagði McGee í viðtali við People.
Sagðist hún tala við þau einu sinni í viku, á sunnudögum. Nú tala þau hins vegar oftar saman en samskiptaleysið olli uppnámi til að byrja með. Tvö af börnunum komust að óléttunni í gegnum fjölmiðla og varð eitt barnanna reitt til að byrja með.
Varð ólétt náttúrulega
McGee segir að óléttan hafi komið henni sjálfri á óvart og kraftaverkið hafi orðið til alveg náttúrulega. Þakkar hún heilsusamlegum lífsstíl.