mið. 19. júní 2024 10:40
Doctor Victor á tvíbura.
Doctor Victor kynnir nöfn tvíburanna

Doctor Victor, tónlistarmaður og læknir, eignaðist tvíburadrengi með unnustu sinni, Dag­björtu Gudjohnsen Guðbrands­dótt­ur bráðalækn­i, í maí. Nú eru tvíburarnir komnir með nöfn. 

„Máni & Stormur Victorsson,“ skrifaði doctor Victor við mynd á Instagram. 

https://www.mbl.is/ferdalog/frettir/2024/04/19/thekktu_doctor_victor_fra_litla_islandi/

Doctor Victor var í viðtali við ferðavef mbl.is í apríl þar sem hann greindi frá væntanlegum tvíburum. „En fyr­ir utan tón­list­ina þá er ég að vinna í nýj­um og spenn­andi hlut­um í lækn­is­fræðinni þar sem ég hef brenn­andi áhuga á að fyr­ir­byggj­andi lækn­is­fræði og að létta álagið í heil­brigðis­kerf­inu. Og svo á ég von á tví­bur­um bráðlega sem verður stærsta „út­gáf­an“ mín hingað til,“ seg­ir Victor í apríl. 

Fjölskylduvefurinn óskar Mána og Stormi til hamingju með nöfnin!

View this post on Instagram

A post shared by Doctor Victor (@doctorvictorsound)

 

 

til baka