mið. 2. okt. 2024 06:00
Listaverkið er tekin niður af vegg í stigagangi í bitum og bútum.
Listaverk Nínu á nýjan stað

Unnið er þessa dagana að flutningi á stóru mósaíkverki eftir Nínu Tryggvadóttur sem er í húsakynnum Icelandair við Reykjavíkurflugvöll. Því verður nú komið fyrir í nýjum höfuðstöðvum flugfélagsins í Hafnarfirði, en þangað er verið að flytja starfsemina nú og á því að ljúka fyrir áramót. Skrifstofuhúsið á flugvellinum er í eigu Reita sem munu ráðstafa því í aðra starfsemi.

Verkið var upphaflega á Kennedy-flugvelli

Verkið sem er er 5,9 x 2,7 m á stærð er án titils en hefur verið kallað Víkingaskip á siglingu í takt við myndefnið. Það var á sínum tíma sérstaklega unnið af listakonunni Nínu fyrir orð Sigurðar Helgasonar, þá svæðisstjóra Loftleiða í Bandaríkjunum og seinna forstjóra Flugleiða. Var því komið fyrir í afgreiðslusal félagsins á Kennedy-flugvelli í New York. Þetta var árið 1968 og var verkinu lokið af Al Copley myndlistarmanni, eiginmanni Nínu, en henni entist ekki aldur til að ljúka því.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag. 

til baka