mið. 2. okt. 2024 06:25
Eldur kom upp hjá fyrirtækinu Krýna í Fellsmúla í nótt. Um er að ræða húsið sem stundum gengur undir nafninu Hreyfilshúsið.
Eldur kviknaði í skrifstofuhúsnæði í Fellsmúla

Eldur kviknaði á fimmtu og efstu hæð skrifstofuhúsnæðis í Fellsmúla í Reykjavík í nótt. Tilkynning barst slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu rétt fyrir klukkan tvö.

Allar stöðvar voru sendar á staðinn og gekk greiðlega að slökkva eldinn.  Búið var að slökkva hann á fyrsta hálftímanum, að sögn Gunnlaugs Jónssonar, aðstoðarvarðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Vatnsskemmdir urðu einnig í húsnæðinu eftir að rör fór í sundur. Slökkviliðið lauk störfum á vettvangi á fimmta tímanum í nótt.

Gunnlaugur segist ekki geta sagt til um umfang tjónsins en nefnir að eldurinn hafi logað á einni hæð, auk vatnsskemmdanna. Enginn eldur komst í þak hússins og ekkert fólk var á staðnum þegar eldurinn kviknaði.

til baka