fös. 14. feb. 2025 12:50
Vörður II, björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Patreksfirði tók við drætti fiskiskipsins Jóhönnu Gísla og komu þau til hafnar á Patreksfirði snemma í morgun.
Ríflega 32 tíma björgunaraðgerð

Snemma í morgun kom Vörður II, björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Patreksfirði, til hafnar með fiskiskipið Jóhönnu Gísla í togi.

Í tilkynningu frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu kemur fram að þá hafi verið liðnar 32 klukkustundir frá því Jóhanna Gísla hafi fengið pokann í skrúfuna um 70 sjómílur norðvestur af Látrabjargi og varð fyrir vikið óstjórnhæft.

https://www.mbl.is/200milur/frettir/2025/02/13/islenskt_skip_oskadi_eftir_adstod/

Strax í fyrrakvöld hófst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar handa við að skipuleggja björgun Jóhönnu og drátt á skipinu til lands. Varðskipinu Þór, sem þá var statt austan við land, var stefnt í átt að Jóhönnu, ásamt því að áhöfnum björgunarskipa Landsbjargar á Rifi og Patreksfirði var gert viðvart.

 

Skipstjóri Guðmundar í Nesi, sem var á veiðum ekki langt frá Jóhönnu, ákvað að draga veiðarfæri sín og halda til aðstoðar skömmu fyrir miðnætti í fyrrinótt. Klukkan 4 um nóttina var áhöfn Guðmundar í Nesi búin að koma taug á milli skipanna. Hraði skipanna í drættinum var frekar lítill eða um tvær og hálf til þrjár og hálf sjómíla á klukkustund.

Það var svo rúmlega eitt í nótt sem áhöfn Varðar II var ræst út og haldið til móts við skipin, sem þá voru að nálgast mynni Patreksfjarðar. Vörður II tók við drætti Jóhönnu rétt upp úr 2 í nótt og hélt þá Guðmundur í Nesi aftur til veiða.

Vörður kom svo með Jóhönnu Gísla til hafnar á Patreksfirði snemma í morgun, rétt einum og hálfum sólarhring síðar.

 

til baka