mið. 16. apr. 2025 09:01
Bréfin eru skráð undir auðkenninu GLCR og er þetta fyrsti kauphallarsjóðurinn sem er skráður erlendis sem fjárfestir í íslenskum hlutabréfum.
Íslendingar hefja innreið á bandarískan markað

Kauphallarsjóðurinn GlacierShares Nasdaq Iceland ETF hefur verið skráður á bandaríska Nasdaq markaðinn. Bréfin eru skráð undir auðkenninu GLCR og er þetta fyrsti kauphallarsjóðurinn sem er skráður erlendis sem fjárfestir í íslenskum hlutabréfum.

Þetta segir í tillkynningu frá GlacierShares.

Koma íslenskum félögum á framfæri

„Með skráningu sjóðsins erum við að koma íslenskum félögum á framfæri á stærsta og virkasta hlutabréfamarkaði heims. GlacierShares Nasdaq Iceland ETF brúar þannig bilið milli íslensks hagkerfis og alþjóðlegra fjárfesta með hagkvæmum hætti,“ er haft eftir Helga Frímannssyni, fjárfestingaráðgjafa hjá GlacierShares, rekstraraðila sjóðsins.

Hringdu bjöllunni á markaðnum

„Það er virkilega spennandi að fjárfestar á bandaríska markaðnum geti nú í fyrsta sinn fjárfest í kauphallarsjóði sem fjárfestir á íslenska markaðnum,“ er haft eftir Magnúsi Harðarsyni, forstjóra Nasdaq Iceland.

„Hlutabréfamarkaðurinn hér á landi er öflugur og vaxandi markaður með áhugaverð og framsækin fyrirtæki. Við fögnum þessu framtaki.“

Til að fagna skráningunni hringdu aðstandendur og samstarfsaðilar sjóðsins bjöllunni á Nasdaq markaðnum í New York þriðjudaginn 15. apríl að viðstöddum fulltrúum skráðra íslenskra félaga og sendiherra Íslands í Bandaríkjunum, ásamt fleirum.

til baka