„Það eru alltaf færri sem fara á pósthús og svo vorum við á hrakhólum með húsnæðið í Firðinum,“ segir Þórhildur Ólöf Helgadóttir forstjóri Póstsins um þá frétt Morgunblaðsins í gær að til stæði að loka útibúi Póstsins í Hafnarfirði.
„Við vorum á fyrstu hæðinni og vegna breytinga sem þar voru gerðar vorum við færð upp á 2. hæð og leigusamningurinn rann út. Þeir í Firðinum voru vissulega tilbúnir að gera eitthvað fyrir okkur en við töldum betra að losa þetta húsnæði, flytja hluta af starfseminni í Kópavoginn og um leið að halda áfram að fjölga póstboxunum sem eru orðin 7 í Hafnarfirði.“
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/05/07/posthusinu_vid_fjardargotu_verdur_lokad/
Í póstboxum er bæði hægt að póstleggja og sækja póst og lýsir Þórhildur þeim eins og sjálfsafgreiðslukassa. Þegar um ábyrgðarbréf er að ræða eru þau send heim til fólks.
„Fólk getur sent ábyrgðarbréf í gegnum póstboxin og ef það kýs að gera það ekki þá er hægt að gera það í pósthúsinu á Dalvegi, á Höfðanum og í Síðumúla. Fjarlægðin á milli miðbæjar Hafnarfjarðar og pósthússins á Dalvegi er um 4 kílómetrar og ef við berum saman vegalengdir þá er þetta ekki lengra en fyrir íbúa í vesturbæ Reykjavíkur eða á Seltjarnarnesi í næsta pósthús sem er í Síðumúla. Í Árborg eru 11 kílómetrar á milli Eyrarbakka og Selfoss þar sem er næsta pósthús.“
Hvar verður lokað næst?
„Við höfum verið að fækka pósthúsum í hagræðingarskyni. Árið 2019 vorum við með 56 mannaðar afgreiðslur en í dag erum við með 23. Það má segja að við séum komin á þann stað sem við viljum vera á, en maður veit aldrei hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Póstboxin eru alltaf að verða vinsælli og eru nú komin með 40% afhendingar í gegnum póstbox sem eru orðin 120 um land allt. Fólk getur nýtt sér þau allan sólarhringinn, sem hefur sérstaklega komið vel út á landsbyggðinni þar sem afgreiðslutíminn var mjög takmarkaður.