Njarđvík knúđi fram hreinan oddaleik um Íslandsmeistaratitil kvenna í körfubolta eftir glćsilegan sigur á Haukum, 94:78, í Innri Njarđvík í kvöld. Liđin leika ţví hreinan úrslitaleik á ţriđjudaginn í Hafnarfirđi.
Ljónynjurnar úr Njarđvík mćttu dýrvitlausar til leiks í dag og náđu fínu forskoti í byrjun. Brittany Dinkins byrjađi stórkostlega og setti niđur tvo ţrista í upphafi.
Haukakonur voru ţó aldrei langt undan og hleyptu Njarđvík aldrei meira en 9 stigum fram úr sér. Ţegar fyrsta leikhluta lauk var stađan 25:20 fyrir Njarđvík.
Haukar voru sterkari í öđrum leikhluta og söxuđu á forskot Njarđvíkur. Hápressuvörn Hauka er illviđráđanleg og fengu Njarđvíkingar ađ reyna ţađ. Stór skot duttu niđur hjá Haukum, međal annars ţristur frá Rósu Björk Pétursdóttur sem fór í spjaldiđ og ofan í.
Haukar gátu náđ forskotinu rétt fyrir hálfleik en ţađ tókst ekki og stađan 42:41 fyrir Njarđvík.
Haukar náđu forystunni í leiknum í byrjun ţriđja leikhluta. Njarđvík jafnađi međ ţriggja stiga körfu frá Brittany Dinkins í stöđunni 45:45. Njarđvík komst síđan yfir í leiknum en Ţóra Kristín Jónsdóttir jafnađi fyrir Hauka međ ţriggja stiga körfu.
Njarđvík náđi síđan aftur yfirhöndinni og byggđi upp ágćtt forskot fyrir fjórđa leikhlutann. Stađan eftir ţriđja leikhluta var 69:59 fyrir Njarđvík.
Njarđvíkurkonur börđust eins og sannar ljónynjur í fjórđa leikhluta. Ţćr settu niđur hvern ţristinn á fćtur öđrum og byggđu upp 26 stiga forskot í stöđunni 88:62.
Haukar náđu ţó ađ klóra í bakkann međ frábćrum kafla og minnka forskotiđ fyrir leikslok.
Liđin leika ţví hreinan oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn á ţriđjudag á heimavelli Hauka.
Brittany Dinkins skorađi 29 stig og gaf 5 stođsetningar fyrir Njarđvík og tók Emilie Sofie Hesseldal 14 fráköst.
Lore Devos skorađi 26 stig fyrir Hauka og tók 15 fráköst. Ţóra Kristín Jónsdóttir gaf 9 stođsendingar.
Gangur leiksins:: 8:5, 16:12, 23:14, 25:20, 31:24, 35:32, 40:35, 42:41, 45:45, 50:47, 60:57, 69:59, 76:60, 84:62, 88:65, 94:78.
Njarđvík: Brittany Dinkins 29/7 fráköst/5 stođsendingar, Paulina Hersler 16/14 fráköst, Hulda María Agnarsdóttir 13/4 fráköst, Lára Ösp Ásgeirsdóttir 12, Emilie Sofie Hesseldal 9/14 fráköst/3 varin skot, Eygló Kristín Óskarsdóttir 8, Krista Gló Magnúsdóttir 5, Sara Björk Logadóttir 2.
Fráköst: 34 í vörn, 11 í sókn.
Haukar: Lore Devos 26/15 fráköst, Rósa Björk Pétursdóttir 17/4 fráköst/6 stolnir, Ţóra Kristín Jónsdóttir 12/4 fráköst/9 stođsendingar, Diamond Alexis Battles 9/7 fráköst/6 stođsendingar, Tinna Guđrún Alexandersdóttir 6, Sigrún Björg Ólafsdóttir 5, Sólrún Inga Gísladóttir 3.
Fráköst: 24 í vörn, 11 í sókn.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Jóhannes Páll Friđriksson, Jón Ţór Eyţórsson.
Áhorfendur: 1000